Framleiðendur

Einar’s Distillery

Klaksvík, Færeyjar, síðan 2016

Einar’s Distillery er eimingarhús Föroya Bjór-fjölskyldunnar í Klaksvík. Fyrsta flaskan af Einar’s Akvavitt kom á markað árið 2016 og sama haust voru fyrstu viskítunnurnar fylltar. Í dag framleiðir húsið ákavíti, gin, vodka, snafsa og færeyskt single malt viskí.

Fá verðlista

Vörur frá Einar’s Distillery

Spurt og svarað um Einar’s Distillery

Hver flytur inn Einar’s Distillery á Íslandi?
Borg99 flytur inn Einar’s Distillery frá Færeyjum og selur í heildsölu til veitingastaða, bara, hótela og fyrirtækja með tilskilin leyfi. 15 vörur eru í úrvalinu.
Hvar geta einstaklingar keypt Einar’s Distillery?
Borg99 selur ekki beint til einstaklinga. Margar vörurnar fást í Vínbúðinni og vínin okkar í netverslun Vínklúbbsins á vinklubburinn.is.
Hvernig panta veitingastaðir Einar’s Distillery frá Borg99?
Hafðu samband á borg99@borg99.is eða í síma 617 6331. Við sendum heildsöluverðlista, stofnum viðskiptareikning og sjáum um afhendingu.