Um Borg99

Borg99 er heildverslun og innflytjandi í Reykjavík. Við seljum vín, bjór, sterkt áfengi og óáfenga drykki til veitingastaða, bara, hótela og verslana.

Byrjaði með færeyskum bjór

Félagið var stofnað í maí 2009 undir nafninu Föroya Bjór ehf. til að flytja inn bjór frá færeyska fjölskyldubrugghúsinu Föroya Bjór í Klaksvík. Bjórinn hefur verið fáanlegur á Íslandi óslitið frá 2014 og er enn hryggjarstykkið í starfseminni, ásamt sterku áfengi frá Einar’s Distillery.

Vín frá húsum sem við trúum á

Með árunum bættust vínin við. Í dag flytjum við inn vín frá Duckhorn-fjölskyldunni í Kaliforníu, Bestheim og Domaine Weinbach í Alsace, Château Palmer og Château Teyssier í Bordeaux, Bodegas Berceo í Rioja, Kraljevski Vinogradi í Króatíu og vínhúsum í Suður-Afríku, á Ítalíu og Indlandi og í Ísrael.

Alls eru í úrvalinu 189 vörur frá 42 framleiðendum í 24 löndum. Skoða alla framleiðendur.

Fyrir veitingastaði, bari og hótel

Við seljum í heildsölu og áfengi er eingöngu selt aðilum með tilskilin leyfi. Við hjálpum gjarnan til við að setja saman vínlista, velja bjór á krana eða finna vín sem passar við matseðilinn.

Einstaklingar geta keypt margar af vörunum í Vínbúðinni og vínin okkar fást einnig í netverslun Vínklúbbsins á vinklubburinn.is.

Hafa samband