
Bestheim Chasseurs de Lune Pinot Gris
Ilmríkt Pinot Gris frá Alsace
Bestheim Pinot Gris er gullið hvítvín í dæmigerðum Alsace-stíl. Ilmurinn er ríkulegur og opnast með þroskuðum perum, ferskju, hunangi og þurrkuðum apríkósum, ásamt léttum reykjar- og kryddtónum sem einkenna þrúguna. Í munni er vínið kringlótt og nánast silkimjúkt, með meiri fyllingu en flest hvítvín, örlitlum ávaxtasætuvotti og nægri sýru til að halda góðu jafnvægi. Pinot Gris nýtur sín einstaklega vel í svölu og þurru loftslagi Alsace, þar sem langt og milt haust gefur þrúgunni tíma til að byggja upp ilm og þéttleika. Þetta er höfðinglegt og matvænt hvítvín sem ræður við bragðmeiri rétti en fólk treystir hvítvíni alla jafna fyrir.
- Framleiðandi
- Bestheim
- Tegund
- Hvítvín
- Land
- Frakkland
- Svæði
- Alsace
- Þrúgur
- Pinot Gris
- Árgangur
- 2021
- Styrkleiki
- 13,5%
- Umbúðir
- 75 cl flaska
- Vörunúmer
- 20306
Passar með
- Alifugl
- Svínakjöt
- Fiskur
- Asískir réttir
- Ostar
Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum






