Château Laforge Saint-Emilion Grand Cru

Vörur / Léttvín

Château Laforge Saint-Emilion Grand Cru

Djúpt og fágað Saint-Émilion

Château Laforge 2020 er þéttofið og fágað rauðvín frá Saint-Émilion Grand Cru. Liturinn er djúpur, dimmrauður með fjólubláum kanti. Ilmurinn hefst á þroskuðum plómum, svörtum kirsuberjum og bláberjum, en á eftir fylgja tónar af vanillu, dökku súkkulaði, sedrusviði og mold sem vitna um vandaða víngerð og kalkríkan jarðveg svæðisins. Merlot ber uppi mjúka, holdmikla fyllinguna en Cabernet Franc léttir vínið með ferskleika og kryddi. Tannínin eru þétt en slípuð og eftirbragðið langt og hlýtt. Vínið mun þroskast fallega í kjallara eða vínskáp næstu árin, og sé það opnað ungt er umhelling í karöflu vel þess virði. Glæsilegt Bordeaux-vín sem sómir sér á hátíðarborðinu.

Framleiðandi
Château Teyssier og Le Dôme
Tegund
Rauðvín
Land
Frakkland
Svæði
Saint-Émilion
Þrúgur
Cabernet Franc, Merlot
Árgangur
2020
Styrkleiki
14%
Umbúðir
75 cl flaska
Vörunúmer
10820

Passar með

  • Nautakjöt
  • Lambakjöt
  • Villibráð
  • Pottréttir
  • Ostar

Fá verð og panta

Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum

Um Château Teyssier og Le Dôme

Enski víngerðarmaðurinn Jonathan Maltus keypti Château Teyssier í Saint-Émilion árið 1994 og hefur byggt þar upp safn vína sem spannar allt frá rausnarlegu Grand Cru til Le Dôme, eins eftirsóttasta víns svæðisins. Le Dôme sker sig úr með óvenju háu hlutfalli Cabernet Franc.

Fleiri vörur frá Château Teyssier og Le Dôme