
Decoy California Cabernet Sauvignon
Rausnarlegt Cabernet frá Kaliforníu
Decoy California Cabernet Sauvignon hellist dimmrautt í glasið með fjólubláum brúnum. Ilmurinn er opinn og aðlaðandi: dökk kirsuber, sólber, plómur, vanilla og mjúkt bökunarkrydd. Bragðið fylgir ilminum fast eftir og þetta er ávaxtadrifið og höfðinglegt Cabernet með góðri fyllingu, flauelsmjúkum tannínum og hlýrri, ávalri áferð sem gerir vínið sérlega aðgengilegt strax í dag. Kalifornísk sól skín í gegn í þroskuðum ávextinum en fersk sýra sér til þess að vínið verði aldrei þunglamalegt heldur haldi léttleika sínum út í gegn. Eftirbragðið er mjúkt og kryddað með ljúfum súkkulaðikeim. Þetta er rauðvín sem gleður breiðan hóp og er áreiðanlegt, rausnarlegt og auðvelt að elska.
- Framleiðandi
- Duckhorn Portfolio
- Tegund
- Rauðvín
- Land
- Bandaríkin
- Svæði
- Kalifornía
- Þrúgur
- Cabernet Sauvignon
- Árgangur
- 2020
- Styrkleiki
- 13%
- Umbúðir
- 75 cl flaska
- Vörunúmer
- 22512
Passar með
- Nautakjöt
- Grillmatur
- Svínakjöt
- Alifugl
- Ostar
Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum








