Sula Dindori Reserve Shiraz

Vörur / Léttvín

Sula Dindori Reserve Shiraz

Framandi Shiraz rauðvín frá Indlandi

Sula Dindori Reserve Shiraz er framandi og forvitnilegt rauðvín frá Nashik á Indlandi, með dökkfjólubláan lit. Ilmurinn er kryddaður og heitur: brómber, plómur, svartur pipar, negull og vottur af dökku súkkulaði og reyk. Loftslag Nashik, sem liggur hátt yfir sjávarmáli, gefur þrúgunum fulla þroskun en hæðin varðveitir ferskleikann í berjunum. Bragðið er þétt og bragðmikið með góðri fyllingu, mjúkum og þroskuðum tannínum og hlýju, krydduðu eftirbragði sem kallast skemmtilega á við bragðsterkan mat. Vínið nýtur sín einstaklega vel með indverskum og öðrum asískum réttum en stendur líka vel eitt og sér. Þetta er Shiraz með sinn eigin hreim, sannur fulltrúi nýrrar kynslóðar vínheimsins.

Framleiðandi
Sula Vineyards
Tegund
Rauðvín
Land
Indland
Svæði
Nashik
Þrúgur
Shiraz
Árgangur
2023
Styrkleiki
14%
Umbúðir
75 cl flaska
Vörunúmer
100330

Passar með

  • Grillmatur
  • Lambakjöt
  • Nautakjöt
  • Asískir réttir
  • Pottréttir

Fá verð og panta

Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum

Um Sula Vineyards

Sula Vineyards er brautryðjandi indverskrar víngerðar, með höfuðstöðvar í Nashik norðaustur af Mumbai. Vínin eiga sérstaklega vel við indverska og kryddaða matargerð og eru sjálfsagður kostur á vínlista indverskra veitingastaða.

Fleiri vörur frá Sula Vineyards