Domaine Weinbach Gewurztraminer Cuvée Theo

Vörur / Léttvín

Domaine Weinbach Gewurztraminer Cuvée Theo

Alsace-gersemi frá Domaine Weinbach

Gewurztraminer Cuvée Théo er ilmandi og seiðandi hvítvín með djúpgylltan lit. Ilmurinn er einstakur: rósablöð, litkaber (lychee), engifer og suðræn krydd streyma úr glasinu. Bragðið er ríkulegt og silkimjúkt með þéttri fyllingu, blómlegri sætu í jafnvægi við ferska sýru og langt, kryddað eftirbragð. Gewurztraminer nær óvíða sömu hæðum og í Alsace og hér er þrúgan í höndum eins besta framleiðanda svæðisins. Vín sem á fáa sína líka, stórkostlegt eitt og sér en líka einstakur förunautur t.d. með asískum réttum og þroskuðum ostum.

Framleiðandi
Domaine Weinbach
Tegund
Hvítvín
Land
Frakkland
Svæði
Alsace
Þrúgur
Gewurztraminer
Styrkleiki
13%
Umbúðir
75 cl flaska
Vörunúmer
20608

Passar með

  • Asískir réttir
  • Ostar
  • Fordrykkur
  • Eftirréttir

Fá verð og panta

Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum

Um Domaine Weinbach

Domaine Weinbach stendur við rætur Schlossberg-hæðarinnar í Kaysersberg í Alsace og er nefnt eftir litlum læk sem rennur um landareignina. Kapúsínamunkar hófu þar vínrækt árið 1612 og Faller-fjölskyldan hefur rekið húsið frá 1898. Vínekrurnar eru ræktaðar með lífefldum aðferðum og vínin teljast til þeirra fremstu í héraðinu.

Fleiri vörur frá Domaine Weinbach