Domaine Weinbach Pinot Gris Cuvée Sainte Catherine

Vörur / Léttvín

Domaine Weinbach Pinot Gris Cuvée Sainte Catherine

Hátíðlegur Pinot Gris frá Alsace

Cuvée Sainte-Catherine skartar djúpum gullnum lit sem gefur ríkidæmi vínsins strax til kynna. Ilmurinn er dáleiðandi: þroskuð pera, apríkósa, hunang, reykur og ljúft krydd fléttast saman í margslungna heild. Í munni er vínið hnausþétt og silkimjúkt, með mikilli fyllingu og olíukenndri áferð sem einkennir bestu Pinot Gris-vín Alsace, en fersk sýra og steinefnakennd festa halda öllu í fullkomnu jafnvægi. Eftirbragðið er langt og ljómandi, með hunangs- og kryddtónum sem óma lengi. Þetta er hvítvín af hátíðlegri gerðinni - það þolir vel umhellingu og á inni margra ára þroska í kjallara. Stórbrotinn Pinot Gris sem sýnir hvers vegna Alsace er á meðal helgustu véa hvítvínsins.

Framleiðandi
Domaine Weinbach
Tegund
Hvítvín
Land
Frakkland
Svæði
Alsace
Þrúgur
Pinot Gris
Styrkleiki
14%
Umbúðir
75 cl flaska
Vörunúmer
4964

Passar með

  • Alifugl
  • Fiskur
  • Asískir réttir
  • Svínakjöt
  • Ostar

Fá verð og panta

Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum

Um Domaine Weinbach

Domaine Weinbach stendur við rætur Schlossberg-hæðarinnar í Kaysersberg í Alsace og er nefnt eftir litlum læk sem rennur um landareignina. Kapúsínamunkar hófu þar vínrækt árið 1612 og Faller-fjölskyldan hefur rekið húsið frá 1898. Vínekrurnar eru ræktaðar með lífefldum aðferðum og vínin teljast til þeirra fremstu í héraðinu.

Fleiri vörur frá Domaine Weinbach