Greenwing Columbia VLY Cabernet Sauvignon

Vörur / Léttvín

Greenwing Columbia VLY Cabernet Sauvignon

Ferskt Cabernet frá Washington

Greenwing Cabernet Sauvignon ber dökkrauðan, safaríkan lit. Í nefinu mætast dökk ber s.s. sólber og brómber og tónar af mokka, lavender og mildu ristuðu kryddi. Columbia Valley í Washington-ríki býður upp á sólrík sumur og svalar nætur, og sú sveifla skilar Cabernet með þroskuðum ávexti og ferskri, lifandi sýru í senn. Bragðið er þétt en mjúkt, með góðri fyllingu, fínslípuðum tannínum og hreinum, dökkum ávexti sem heldur dampi fram í kryddað eftirbragðið. Vínið er aðgengilegt strax en hefur jafnframt byggingu til að standa með matarmiklum réttum. Þetta er ferskt og nútímalegt Cabernet sem sýnir hvers vegna Washington er eitt mest spennandi rauðvínssvæði Bandaríkjanna.

Framleiðandi
Duckhorn Portfolio
Tegund
Rauðvín
Land
Bandaríkin
Svæði
Columbia Valley, Washington
Þrúgur
Cabernet Sauvignon
Styrkleiki
14%
Umbúðir
75 cl flaska
Vörunúmer
28752

Passar með

  • Nautakjöt
  • Grillmatur
  • Lambakjöt
  • Pottréttir

Fá verð og panta

Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum

Um Duckhorn Portfolio

Duckhorn Vineyards er eitt virtasta vínhús Napa-dalsins, stofnað af hjónunum Dan og Margaret Duckhorn árið 1976. Húsið byggði orðspor sitt á Merlot og Cabernet Sauvignon og hefur síðan vaxið í fjölskyldu vínhúsa sem hvert sinnir sinni þrúgu og sínu svæði. Borg99 flytur inn vín frá átta húsum fjölskyldunnar, allt frá aðgengilegu Decoy til vína af einni ekru á borð við Three Palms Merlot.

Fleiri vörur frá Duckhorn Portfolio