Noble Hill Chenin Sur Lie

Vörur / Léttvín

Noble Hill Chenin Sur Lie

Mjúkt og ferskt Chenin Blanc

Noble Hill Chenin Sur Lie er ljómandi hvítvín með fölgylltum lit. Ilmurinn dregur fram safaríkar perur, gul epli, melónu og sítrusblóm, með mjúkum bakaratónum sem vitna um þroskun á botnfalli. Sur lie aðferðin - að láta vínið hvíla á fínu gerbotnfalli - gefur því fyllingu, mýkt og rjómakennda áferð sem sjaldan sést í svo ungu og fersku hvítvíni. Sýran er engu að síður lifandi og heldur víninu léttu á fæti, og fíngerðir steinefnatónar koma fram í gegnum hreint eftirbragðið. Þetta er hvítvín sem sameinar svala og fyllingu á sérlega sjarmerandi hátt - suður-afrískt Chenin Blanc eins og það gerist skemmtilegast, jafn gott eitt og sér og með mat.

Framleiðandi
Noble Hill
Tegund
Hvítvín
Land
Suður-Afríka
Svæði
Simonsberg-Paarl
Þrúgur
Chenin Blanc
Árgangur
2024
Styrkleiki
13,5%
Umbúðir
75 cl flaska
Vörunúmer
10321

Passar með

  • Fiskur
  • Skelfiskur
  • Fordrykkur
  • Salöt
  • Grænmetisréttir

Fá verð og panta

Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum

Um Noble Hill

Noble Hill er fjölskyldurekinn vínbúgarður við rætur Simonsberg-fjalls í Paarl. Öll vín eru unnin úr þrúgum af eigin ekrum, þar sem hlýir dagar og svöl kvöld henta bæði rauðum Bordeaux-þrúgum og Chenin Blanc.

Fleiri vörur frá Noble Hill