
Noble Hill Field Atlas
Syrah-blanda að hætti Rhône
Field Atlas er lifandi og kryddað rauðvín frá Simonsberg-Paarl, Rhône-blanda þar sem Syrah fer fremst í flokki (89%) með Mourvèdre, Grenache og örlitlu af Viognier í för. Liturinn er djúpfjólublár og ilmurinn heillandi: dökk ber, svartur pipar, fjólur og villtar kryddjurtir. Hluti þrúgnanna er gerjaður með heilum klösum sem gefur víninu ferskan, safaríkan karakter, og þroskun í steinsteypu og franskri eik skilar fágaðri áferð með mjúkum tannínum. Bragðið er meðalfyllt, kryddað og einstaklega matvænt - suður-afrísk túlkun á norðurhluta Rhône sem kemur skemmtilega á óvart.
- Framleiðandi
- Noble Hill
- Tegund
- Rauðvín
- Land
- Suður-Afríka
- Svæði
- Simonsberg-Paarl
- Þrúgur
- Grenache, Mourvèdre, Syrah
- Styrkleiki
- 13%
- Umbúðir
- 75 cl flaska
- Vörunúmer
- 100320
Passar með
- Grillmatur
- Lambakjöt
- Villibráð
- Pottréttir
Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum



