Kraljevski Crljenak Zinfandel

Vörur / Léttvín

Kraljevski Crljenak Zinfandel

Upprunalegur Zinfandel frá Dalmatíu

Kraljevski Crljenak er dökkt og kraftmikið rauðvín frá Dalmatíu í Króatíu, unnið úr þrúgunni Crljenak Kaštelanski, hinni upprunalegu þrúgu á bak við Zinfandel. Liturinn er djúpur og dökkrauður. Ilmurinn er hlýr og suðrænn: þroskuð brómber, kirsuberjasulta, þurrkaðar fíkjur, svartur pipar og Miðjarðarhafskryddjurtir. Bragðið er fyllt og safaríkt með ríkulegum ávexti, hóflegri sýru og þéttum en mjúkum tannínum; hlýjan í víninu ber vott um örláta dalmatíska sól. Hér fær vínáhugafólk að smakka söguna sjálfa, þrúguna eins og hún hefur verið ræktuð við Adríahafið öldum saman áður en hún lagði Kaliforníu að fótum sér. Karakterríkt og eftirminnilegt vín fyrir alla sem vilja rekja rætur Zinfandels.

Framleiðandi
Kraljevski Vinogradi
Tegund
Rauðvín
Land
Króatía
Svæði
Dalmatía
Þrúgur
Crljenak Kaštelanski
Árgangur
2016
Styrkleiki
13%
Umbúðir
75 cl flaska
Vörunúmer
25004

Passar með

  • Grillmatur
  • Nautakjöt
  • Lambakjöt
  • Villibráð
  • Pottréttir

Fá verð og panta

Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum

Um Kraljevski Vinogradi

Kraljevski Vinogradi, „konunglegu víngarðarnir“, liggja við Adríahafið skammt frá Zadar í Dalmatíu. Húsið ræktar króatískar heimaþrúgur á borð við Pošip, Plavac Mali og Crljenak, sem er upprunalega Zinfandel-þrúgan.

Fleiri vörur frá Kraljevski Vinogradi