Kraljevski Plavac Mali

Vörur / Léttvín

Kraljevski Plavac Mali

Sólþroskað rauðvín frá Dalmatíu

Kraljevski Plavac Mali er dökkt og suðrænt rauðvín frá strandhéruðum Dalmatíu í Króatíu, með djúprauðan lit og múrsteinsrauða glampa. Ilmurinn kallar fram sólþroskuð dökk ber, þurrkaðar fíkjur, sveskjur, Miðjarðarhafskryddjurtir og vott af leðri. Plavac Mali gefur að jafnaði kröftug vín og hér er engin undantekning: fyllingin er mikil, tannínin þétt og hlý og ríkulegur, þroskaður ávöxtur ber vínið uppi. Sýran er hófleg en nægileg til að halda jafnvægi, og eftirbragðið er langt með keim af dökku súkkulaði og kryddi. Þetta er karakterríkt vín með sterk svæðiseinkenni - sólin, grjótið og saltur sjórinn í Dalmatíu skila sér beint í glasið.

Framleiðandi
Kraljevski Vinogradi
Tegund
Rauðvín
Land
Króatía
Svæði
Dalmatía
Þrúgur
Plavac Mali
Árgangur
2019
Styrkleiki
13%
Umbúðir
75 cl flaska
Vörunúmer
24972

Passar með

  • Lambakjöt
  • Villibráð
  • Grillmatur
  • Pottréttir
  • Ostar

Fá verð og panta

Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum

Um Kraljevski Vinogradi

Kraljevski Vinogradi, „konunglegu víngarðarnir“, liggja við Adríahafið skammt frá Zadar í Dalmatíu. Húsið ræktar króatískar heimaþrúgur á borð við Pošip, Plavac Mali og Crljenak, sem er upprunalega Zinfandel-þrúgan.

Fleiri vörur frá Kraljevski Vinogradi