
Kraljevski Posip Prestige
Þétt og suðrænt hvítvín frá Króatíu
Kraljevski Pošip Prestige er metnaðarfullt hvítvín úr einni merkustu hvítvínsþrúgu Króatíu. Liturinn er djúpt strágulur með gylltum blæ. Ilmurinn minnir á þroskaðar perur, apríkósur og gular melónur, kryddaður möndlum, akasíublómum og saltri golu Adríahafsins. Bragðið er óvenju þétt fyrir hvítvín: fyllingin breið og áferðin nánast olíukennd, en fersk sýra og steinefnakenndur kjarni halda öllu í skorðum fram í langt eftirbragð. Prestige-útgáfan er hugsuð sem stærri og alvarlegri túlkun á þrúgunni, með meiri þéttleika og dýpt en hefðbundin sumarvín svæðisins. Þetta er hvítvín með burði og karakter. Spennandi kostur fyrir öll þau sem vilja kynnast króatískri víngerð eins og hún gerist best.
- Framleiðandi
- Kraljevski Vinogradi
- Tegund
- Hvítvín
- Land
- Króatía
- Svæði
- Dalmatía
- Þrúgur
- Pošip
- Árgangur
- 2020
- Styrkleiki
- 13%
- Umbúðir
- 75 cl flaska
- Vörunúmer
- 27623
Passar með
- Fiskur
- Skelfiskur
- Alifugl
- Grænmetisréttir
Fyrir einstaklinga: fæst hjá Vínklúbbnum




